Félagsfælni Félagsfælni

Félagsfælni

    • 4.0 • 1 Rating

Publisher Description

Öll finnum við fyrir kvíða af og til og jafnvel daglega. Þessi kennd er náskyld óttakennd og við venjulegar aðstæður náum við fljótt tökum á kvíðanum og getum bægt honum frá. Hins vegar eru til ýmsar tegundir af kvíða sem láta ekki að stjórn og eru því á óeðlilegu eða jafnvel sjúklegu stigi.

Fælni er ein tegund sjúklegs kvíða sem getur valdið langvinnri vanlíðan og truflað félagslega getu verulega. Þá myndast órökrænn og sterkur kvíði og ótti gagnvart ákveðnum hlut, atburði eða aðstæðum. Þetta veldur ekki einungis andlegri vanlíðan heldur einnig breytingum á hegðun þar sem sá sjúki forðast ákveðnar aðstæður, þ.e. fælni hefur myndast.

GENRE
Professional & Technical
RELEASED
2011
May 13
LANGUAGE
IS
Icelandic
LENGTH
12
Pages
PUBLISHER
Actavis
SELLER
Edda Media Ltd.
SIZE
375
KB

More Books by Ólafur Þór Ævarsson