Innlend fréttamyndskeið mbl.is
By Unknown
To listen to an audio podcast, mouse over the title and click Play. Open iTunes to download and subscribe to podcasts.
Podcast Description
Fréttamyndskeið af viðburðum líðandi stundar.
| Name | Description | Released | Price | ||
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | VideoEurovision keppnin í SingStar | Grétar Örvarsson tók fyrst þátt í Eurovision árið 1990 með Stjórninni og söng hið ógleymanlega lag Eitt lag enn. Pétur Finnbogason í Bláum Ópal var ekki fæddur þegar Stjórnin náði fjórða sætinu. Þeir tóku þátt í Eurovision-keppni MonitorTV og er lítið hægt annað að segja en sjón er sögu ríkari. | 5/25/12 | Free | View In iTunes |
| 2 | VideoHjólin fá að snúast að nýju | Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. | 5/25/12 | Free | View In iTunes |
| 3 | VideoHefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang | Þjálfarinn reyndi Bjarni Jóhannsson, sá á eftir stigunum tveimur sem Stjarnan missti þegar ÍA jafnaði metin á 73. mínútu í Garðabænum í kvöld. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 4 | VideoLogi: Föst leikatriði urðu okkur að falli | Logi Ólafsson, þjálfari Selfoss, sagði ekki hægt að mæla það með neinni mælistiku hversu svekktur hann var með að missa 3:1 stöðu gegn Grindavík niður í jafntefli, 3:3. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 5 | VideoMagnús: Orðlaus yfir þessu marki | Ég er orðlaus yfir þessu marki og var að ræða það við leikmenn mína, sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, eftir 1:0 tap í Keflavík í kvöld. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 6 | VideoGuðjón: Fyrst og fremst meiri vilji | Grindavík kom til baka í kvöld gegn Selfossi og náði í jafntefli, 3:3, eftir að hafa lent undir, 3:1. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 7 | VideoÞetta færi hlýtur að rata á Youtube | Garðar Gunnlaugsson skoraði jöfnunarmark ÍA eftir að hafa komið inn á sem varamaður þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Stjörnuna í Garðabænum í kvöld. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 8 | VideoZoran: Þetta var sex stiga leikur | Þetta var sex stiga leikur og við vorum ákveðnir í að krækja í stigin, sagði Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflvíkinga ánæður með stigin þrjú á móti ÍBV. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 9 | VideoKristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu | Valsmenn þurftu að sætta sig við þriðja tap sitt í röð í kvöld þegar þeir lágu gegn Fylki í Árbænum. Kristján Guðmundsson þjálfari Vals var svekktur yfir að liðið skyldi ekki nýta betur færin sín, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 10 | VideoÁsmundur: Búnir að bíða lengi | Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis var hæstánægður með sigur sinna manna á Val í kvöld. Hann sagði liðið hæglega hafa getað skorað fleiri mörk en þessi þrjú sem þeir skoruðu í fyrsta sigri sumarsins. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 11 | VideoKosning um viðræður óvanaleg | Það er ekki hefð fyrir því á meðal nágrannaþjóða okkar að kjósa um hvort fara eigi í aðildarviðræður við Evrópusambandið eða ekki. Þetta segir Baldur Þórhallsson, alþingsmaður og prófessor í stjórnamálafræði við HÍ. Þingheimur hafi sent skýr skilaboð út í samfélagið og til Evrópusambandsins í dag. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 12 | VideoHelsti óttinn að týna tölvunni | Minn helsti ótti verð ég að segja að sé að týna ferðatölvunni minni. Það er búið að stela af mér tveimur ferðatölvum og ég missti mikið af vinnu og gögnum sem mér þætti mjög kært að fá aftur, segir fatahönnuðurinn Mundi sem prýðir forsíðu Monitor í dag. | 5/24/12 | Free | View In iTunes |
| 13 | VideoEru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum? | Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var svekktur eftir tap liðsins gegn KR, 2:0, á KR-vellinum í kvöld. | 5/23/12 | Free | View In iTunes |
| 14 | VideoBaldur: Þetta var sex stiga leikur | Baldur Sigurðsson, miðjumaður KR, var mjög góður í 2:0 sigri liðsins á FH í Pepsi-deildinni í fótbolta í kvöld. | 5/23/12 | Free | View In iTunes |
| 15 | VideoHjálpræðisherinn í Mjóddina | Hjálpræðisherinn mun í ágúst flytja hluta af starfsemi sinni úr Kirkjustræti inn í Mjódd þar sem unglinga- og ráðgjafarstarfsemi mun vera til húsa ásamt nytjaverslun hersins. Í morgun var haldinn fundur með fulltrúum verslunareigenda í Mjódd, íbúasamtaka í neðra Breiðholti og Hjálpræðishersins. | 5/23/12 | Free | View In iTunes |
| 16 | VideoLífeyrisþegar dragast aftur úr | Á síðustu þremur árum hafa lágmarkslaun hækkað um 33% eða 48 þús. kr. á meðan tryggingabætur tekjulægstu ellilífeyrisþega hafa hækkað um 23. þús. kr. eða 12,8%. Ellilífeyrisþegar eru þreyttir á þeirri kjaraskerðingu sem þeir hafa orðið fyrir að sögn Hinriks Bjarnasonar sem situr í kjaranefnd FEB. | 5/23/12 | Free | View In iTunes |
| 17 | VideoAtkvæðagreiðslan öllum í hag | Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, segir að ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð aðildarviðræðna við ESB væri öllum í hag þar á meðal Evrópusinnum sem fengju þá staðfestingu á umboði sínu. Hinsvegar tekur hún undir að umræðan um atkvæðagreiðslu styðji ekki samningsstöðu Íslands. | 5/23/12 | Free | View In iTunes |
| 18 | VideoÞað má dúndra | Brennó er ekki lengur bara leikur sem grunnskólakrakkar spila í leikfimi í skólanum. Hópur kvenna í Árbænum hittist vikulega til þess að spila brennó og tók meðal annars þátt í Íslandsmeistarakeppninni í brennó síðasta sumar. Það er kannski mál að kalla kónginn drottningu? MonitorTV fór í Árbæinn til þess að forvitnast um hverning þessi brennandi áhugi á leiknum kom til. | 5/22/12 | Free | View In iTunes |
| 19 | VideoKomast leikandi upp úr riðlinum | Páll Óskar er bjartsýnn fyrir kvöldið í kvöld þegar Greta Salóme og Jónsi stíga á svið í Bakú og flytja lagið Never Forget í undanriðli Evróvisjónkeppninnar. Hann vonast jafnframt eftir einvígi á milli Svía og Íslendinga um sigur í úrslitunum sem verða á laugardaginn, líkt og gerðist árið 1999. | 5/22/12 | Free | View In iTunes |
| 20 | VideoÚlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu | Eimskips-mótaröðin í golfi hefst um næstu helgi þegar fyrsta stigamótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Mbl.is tók Úlfar Jónsson landsliðsþjálfara tali og ræddi við hann um mótaröðina sem nú mun gefa stig á heimslista áhugamanna. | 5/22/12 | Free | View In iTunes |
| 21 | VideoHeilsuræktin í Elliðaárdalnum | Framkvæmdir í nýrri heilsuræktarstöð Boot Camp við Rafstöðvarveg eru langt á veg komnar og gert er ráð fyrir því að opna stöðina formlega eftir tvær vikur. Ákvörðunin um að leyfa starfsemina í Elliðaárdal hefur verið nokkuð umdeild en töluverður hluti æfinganna hjá Boot Camp fara fram utandyra. | 5/22/12 | Free | View In iTunes |
| 22 | VideoInnsýn í reksturinn | Um þessar mundir er að koma út ný handbók / kennslubók sem ætluð er litlum og meðal stórum fyrirtækjum sérstaklega sem heitir Innsýn í reksturinn - skjalagangur / skráning / skipulag bókhalds Alkemistinn kynnti sér málið | 5/22/12 | Free | View In iTunes |
| 23 | VideoLogi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning | Logi Ólafsson, þjálfari Selfoss, var brattur eftir sigur nýliðanna á Fram á Laugardalsvellinum í kvöld, 0:2. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 24 | VideoÞorvaldur: Hitt liðið barðist meira | Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var ekki kátur eftir tap sinna manna gegn Selfossi í kvöld, 0:2. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 25 | VideoHentu sykrinum út | Þorbjörg Hafsteinsdóttir segir að við þurfum alls ekki á sykri að halda ef við ætlum að lifa í jafnvægi. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 26 | VideoVinsælasti veitingastaður landsins er í Ikea | Íslenskur veitingastaður selur tæplega 440.000 heitar máltíðir á ári, 140.000 rjómaísa, 230.000 drykki, um 100.000 kökur og aðra eftirrétti og 150.000 pylsur. Veitingastaðurinn er staðsettur í Garðabæ, nánar tiltekið í húsgagnaversluninni Ikea. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 27 | VideoNetkerfi kortlögð í Háskólabíói | Flestir af helstu netkerfasérfræðingum heims eru staddir hér á landi í tengslum við netkerfaráðstefnu sem sett var í Háskólabíói í dag. Terena, Samtök rannsókna- og menntaneta í Evrópu, standa fyrir ráðstefnunni sem lýkur á fimmtudag þar sem teknar verða ákvarðanir um þróun tölvuneta á næstunni. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 28 | VideoLeikritið er úti í salnum | Nei, og ég býst ekki við að gera það nokkurn tímann. Þetta segir Ragnar Kjartansson, listamaður, þegar hann er spurður hvort hann hafi horft á verk sitt Bliss í heilu lagi en í dag er það sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins. Það er þó kannski ekki að undra þar sem verkið er um 12 klst. að lengd. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 29 | VideoZoran: Vorum betra liðið | Zoran Daníel Ljubicic þjálfari Keflvíkinga fannst sárt að fá ekkert út úr leiknum gegn Skagamönnum en liðin áttust við í Pepsi-deildinni á Akranesi í gær þar sem ÍA hrósaði sigri, 3:2. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| 30 | VideoÞórður: Frammúr okkar vonum | Þórður Þórðarson þjálfari Skagamanna segir að byrjun liðsins í Pepsi-deildinni sé langt frammúr vonum en nýliðarnir hafa unnið alla fjóra leiki sína í deildinni og tróna á toppnum. | 5/21/12 | Free | View In iTunes |
| Total: 30 Episodes |
Customer Reviews
Fantastic
Great way to stay up on news an culture in Iceland, love it!



