Lærum og leikum með hljóðin - Allt efni‪ð‬ 4+

Raddlist

Designed for iPad

    • Free

Screenshots

Description

Þróunarsjóður námsgagna 2019 veitti styrk til að þróa áfram þrjá leiki í lok hvers borðs og að viðhalda virkni forritsins Lærum og leikum með hljóðin. Kærar þakkir!

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Árið 2017 fengu forrit Raddlistar 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone.

Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin inniheldur:
- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur
- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið
- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð
- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
- Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga
- Hrós veitt reglulega í forritinu
- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
- Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
- Stigagjöf inni í forritinu
- Árangur sýndur í %
- Skráning athugasemda inni í forritinu
- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
- Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

Frekari upplýsingar:
http.www.youtube/laerumogleikum
www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com

What’s New

Version 2.6

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

Við erum alltaf á tánum að bæta virknina hjá okkur. Við fengum nýlega 5 stjörnu viðurkenningu frá Educational App Store með lofsamlegum ummælum frá fagnefndinni þeirra og auðvitað erum við ennþá í skýjunum með Bett 2016 viðurkenninguna og val um að vera eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti með okkur. Góðar stundir í að læra og leika!

Ratings and Reviews

4.4 out of 5
5 Ratings

5 Ratings

Kolla S ,

Gott framtak

Sonur minn 4 ára reyndist vera með nokkuð mörg frávik þegar hann fór í talgreiningu fyrr á árinu, en ekki nógu mörg til að fá styrk til að fara til talmeinafræðings. Ég keypti því diskinn og finnst hann ótrúlega hjálplegur, maður hefur í raun ekki hugmynd um hvernig á að hjálpa börnum sínum með hljóðin. Þetta er frábært og mjög þarft framtak, svo finnst börnum þetta svo skemmtilegt því þetta er sett fram á svo skemmtilegan og spennandi hátt. Ég tala nú ekki um hvað þetta er gott hjálpartæki fyrir foreldra :) Til hamingju með þetta :)

Konni Warén ,

Frábært forrit og alls ekki síðri þjónusta frá höfundum

Ég átti í smá vandræðum með forritið í upphafi en með frábærri aðstoð frá Raddlist gekk allt upp að lokum. Meiri eindregið með þessu forriti

Hledis og Sveina ,

Takk!

Takk Bryndis og co. fyrir þetta app. Ometanleg hjalp fyrir foreldra sem vilja/þurfa adstoda bornin sin vid ad na tokum a hljodmyndun. Mer finnst þetta lika bara skemmtileg og gaedastundir hja okkur maedgum. Snidugt fyrir oll born og foreldra! Takk aftur ;0)

App Privacy

The developer, Raddlist, has not provided details about its privacy practices and handling of data to Apple. For more information, see the developer’s privacy policy.

No Details Provided

The developer will be required to provide privacy details when they submit their next app update.

More By This Developer

Froskaleikur 3
Education
Froskaleikur 1 - Listin að lesa
Education
Froskaleikur 2 - Listin að lesa
Education
FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
Education
Lærum og leikum með hljóðin -D
Education
Íslenski málhljóðamælirinn
Education

You Might Also Like

Georg og leikirnir
Education
Georg og félagar
Education
Kennsluappið
Education
Karellen
Education
SmáUglan
Reference
Evolytes
Education